Syndari - heldur í vonina
20.10.2004 16:08:22 / sintor

Lúndúnir

Fór í skólann í dag. Mjög áhugaverður dagur. Kennarinn okkar er mjög fínn. Hann er með sítt hár eins og allr kennararnir og segir: "quite cool", mjög oft......which is cool. Hann er alltaf eitthvað að djóka og ég hef það á tilfinningunni að við Ísi séum þeir einu sem föttum brandarana. Það hlær aldrei neinn. Ég veit ekki hvort bekkurinn sé svona þurr á manninn eða hvað...... eða bara að við Ísi séum með jafnlélegan húmor og kennarinn.

Allavegana þá er kennarinn mjög klár og hefur tekist að kenna okkur þumbunum ótrúlega margt.

Mikilvæg tilkinning: ALDREI kaupa neitt í TeleTape!, Við erum búnir að kaupa bæði headphones og síma þar og hvorugt virkar.

Við erum orðinir snillingar í að elda hakk og spaghettí og þess vegna er það oft í matinn. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2004 14:11:14 / sintor

London Calling

Sælt veri fólkið! Maður er bara staddur í London. Hérna er lífið bara gott. Við, Ísleifur, erum komnir með þessa fínu íbúð. Íbúðina fengum við bara á fyrsta degi. Hún er mjög vel staðsett og er klúbbar og barir út um allt hérna í kringum okkur. Við þurfum varla að labba meira en 300 metra. Við erum byrjaðir í skólanum og hann er bara skide-god. Damn verð að fara bless. Allir að fá sér Skype    

www.skype.com

ps. meiri fréttir á eftir


» 4 hafa sagt sína skoðun