|
05.06.2007 10:37:51 / sintor
Jæja, þá er kominn tími til að söðla um og kveðja í bili. Er á
leið til Spánar þar sem ég hyggst hefja nám í pizzugerð. Þetta er
þverfaglegt nám þar sem fleytt verður á akuryrkju, rekstri
pepperóní trjáa, hnoðkjarnarækt og ostagerð, þá helst
parmesan. Mig langar til að þakka öllum gestum mínum fyrir hreint
út sagt frábærar móttökur. Blóm og kransar eru ofdekraðir og
vanþakklátir.
kveðja
Ræktin
ps.
mundu að rækta sjálfan þig
»
03.04.2007 14:22:30 / sintor
Ég hef flutt vefsetur mitt á www.sindri.is
»
08.02.2007 17:27:09 / sintor
Þetta fer nú að verða frekar viðkvæmt þetta árans exem. Frekar
skorpukennt.
»
25.09.2006 15:25:48 / sintor
thann 28. sept
»
15.09.2006 23:18:40 / sintor
»
15.09.2006 21:40:16 / sintor
<pre><pre>sem klikkar ekki eins og sjá má.
»
15.09.2006 11:38:31 / sintor
Sumir hafa bent mér á að þroskast. Ég bendi þeim á brjóstkassan,
bíð eftir að þeir líti niður og renni svo puttanum upp í andlitið.
Svo segi ég: " Tekinn".
»
14.09.2006 20:43:18 / sintor
Tiger Woods er greinilega hugsuður mikill eins og sjá má
hér. Skilningur hans á leiknum gerir hann að yfirburða
spilara.
»
14.09.2006 11:40:48 / sintor
Nú hefur heldur versnað í því. Það hefur hægst á tímaskynjun minni.
Ein mínúta í mínum heimi eru tvær í hinum þeim ytri. Það eru í raun
aðeins tveir möguleikar í stöðunni:
1)Ritgerðarsmíðin eru eiginlega búin því ég er í raun partur af
hinum ytri heimi. Hugur minn er eftir á og undirmeðvitund mín vann
ritgerðina án vitundar sjálfsins.
2)Minni innri heimur er sannleikurinn. Ég er í alvörunni kominn
svona stutt í ritgerðinni sem ég á að verja 19. september.
Hvernig sem öllu er á botninn hvolft, þá er ritgeð mitt orðið
þreytt á sjálfu sér.
»
13.09.2006 00:18:57 / sintor
Zanger Bob is back >smell hjer<
»
11.09.2006 22:11:12 / sintor
Smellið bara
hér og komið ykkur í gott skap. Þessi drengur á eftir að
sigra heiminn.
»
10.09.2006 19:53:19 / sintor
Já, það væri nú óskandi ef maður gæti dánlódað hardveri!
Ég er byrjaður að stunda svona meditation. Það hefur hjálpað mér
gífurlega mikið. Ég er allur eitthvað svo mikið rólegri og
afslappaðari. Ég er eitthvað svo endunærður. Það er svo gott að
vera svona tjillaður og fylgja bara straumnum, fylgja þessu alheims
cosmos. Við sjáum svo bara til hvort straumurinn flytji mig ekki í
átt að ritgerðarheimum. Annars er mér alveg sama, alveg pollrólegur
og ekki fokking shit æstur yfir þessum andskota sem helvítis
djöfulsins ritgerðin mín er.
Já, einhvern veginn finn ég það núna að ég hef mjög góða nærveru.
Ég þreif mig. Ekki það að nærvera mín geti angrað nokkurn annan en
sjálfan mig þessa dagana. Ætli ég sé ekki meira svona óvera.
Reyndar tekur það ekki nema eina mínútu fyrir nefið að ónema lykt.
Ónemandi óvera.
Það eru annars allir að tala um að það sé svo gott að lifa í núinu.
Það er eitthvað sem ég stefni á að gera í framtíðinni.
»
09.09.2006 14:52:33 / sintor
Ég er enn að velta því fyrir mér hverjum ég ætla að gefa
medalíu árið
2008.
»
05.09.2006 03:59:07 / sintor
...sérstaklega þegar ritgerðin bíður. Ég bara varð. Leiðinlegt
samt að youtube þjappaði þessu í mono.
»
01.09.2006 10:05:53 / sintor
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|